Skip to product information
1 af 2

Hario

Hario Polaris vog

Hario Polaris vog

Upphaflegt verð 18,900 ISK
Upphaflegt verð Útsöluverð 18,900 ISK
Útsala Uppselt
Taxes included. Sendingarkostnaður reiknast við lok afgreiðslu
Fjöldi

Hario Polaris er nákvæm og snjöll kaffivog sem auðveldar þér að fylgja uppáhalds uppskriftinni þinni – og endurtaka góðan kaffibolla aftur og aftur.

Það sem aðgreinir Polaris frá hefðbundnum kaffivogum er innbyggð hlutfallsmæling (ratio function). Vogin reiknar hlutfallið á milli kaffis og vatns og sýnir jafnframt framvindu uppáhellingarinnar. Þannig sérðu í rauntíma hversu langt þú ert kominn miðað við það hlutfall sem þú hefur valið. Þetta auðveldar bæði að prófa nýjar uppskriftir og ná sömu niðurstöðu þegar þú finnur uppskrift sem virkar.

Polaris sameinar vog og tímamæli í einfaldri og nettri hönnun og hentar sérstaklega vel fyrir V60 og aðrar pour-over aðferðir. Hámarksþyngd er 2.000 g og tímamælirinn telur upp í 9 mínútur og 59 sekúndur.

Helstu eiginleikar

  • Innbyggð vog og tímamælir
  • Reiknar hlutfall kaffis og vatns
  • Sýnir framvindu uppáhellingar miðað við valið hlutfall
  • Auðvelt að endurtaka sömu uppskrift og niðurstöðu
  • Hámarksþyngd: 2.000 g
  • Hámarkstími: 9:59 mín.
  • Stærð: 127 × 165 × 28 mm
  • Gengur fyrir 3 × AA rafhlöðum
  • Fáanleg í svörtu og hvítu

Hario Polaris er frábær kostur fyrir þá sem vilja meiri stjórn og nákvæmni við uppáhellingu án þess að gera ferlið óþarflega flókið.

Skoða frekari upplýsingar