Skilaréttur

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Þegar pöntun hefur verið gerð er kominn á bindandi samningur um kaup. Samkvæmt reglum um rafræn kaup má falla frá þessum samningi án þess að tilgreina nokkra ástæðu innan 14 daga frá afhendingu vörunnar. Til þess að nýta þann rétt ber viðskiptavini að hafa samband í gegnum form á vefsíðu Betra Kaffis eða senda tölvupóst á info@betrakaffi.is.

Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga eða gallaða vöru.

Betra Kaffi endurgreiðir vöruna þegar vara hefur verið móttekin af því gefnu að varan berist innan 14 daga frá sölu og varan sé í upprunalegu ástandi.

Að öðru leyti er vísað í lög um neytendakaup nr.48/2003.